Lög Arsenalklúbbsins

Lög Arsenalklúbbsins á Íslandi

 

  1. Heiti félagsins,heimili,tilgangur og félagsform
  2. gr.

Félagið heitir „Arsenalklúbburinn á Íslandi“. Enskt hjáheiti er „Arsenal FC Supporters Club Iceland“  og er skammstafað “ASCI”.

 

  1. gr.

Heimili félagsins er lögheimili formanns stjórnar þess a hverjum tíma. Varnarþing félagsins skal vera í Reykjavík.

 

  1. gr.

Tilgangur félagsins er að vera vettvangur fyrir alla stuðningsmenn Arsenal F.C á Íslandi. Félagið skal leitast við að gefa út fréttabréf á því formi sem hentar þykir hverju sinni,standa fyrir ferðum á leiki erlendis, aðstoða félagsmenn við að útvega Arsenalvarning og standa fyrir upplýsingamiðlun fyrir félagsmenn á heimasíðu félagsins á internetinu og/eða samfélagsmiðlum  og aðstoða við útvegun miða á leiki með Arsenal. Jafnframt er stjórn félagsins heimilt að gera annað það sem nauðsynlegt þykir svo sem samræmist framangreindum tilgangi félagsins.

 

  1. gr.

Félagið er áhugamannafélag. Það er ekki rekið í hagnaðarskyni og mun ekki stunda neinn atvinnurekstur né heldur aðra fjárhagslega starfsemi, umfram það sem nauðsynlegt er til að stuðla að tilgangi þess samkvæmt 3.gr

 

  1. Félagsmenn
  2. gr.

Félagsmenn hvers tímabil eru allir sem hafa skráð sig í félagið og greitt félagsgjald.

 

  1. gr.

Félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald njóta fullra félagsréttinda samkvæmt lögum þessum og þeirra hlunninda sem félagið leitast við að afla félagsmönnum.

 

  1. gr.

Stjórn félagsins getur tekið ákvörðun um brottvikningu félaga úr klúbbnum ef þeir,sem fulltrúar klúbbsins innanlands eða erlendis,hegða sér með ótilhlýðilegum hætti í ferðum á vegum félagsins eða í nafni klúbbsins á einhver hátt. Skal slík ákvörðun vera einróma. Brottvikningu skal ekki beitt nema sakir séu miklar eða brot sem áminnt hefur verið fyrir, verið ítrekað. Áður en til brottvikningar kemur skal félaga gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum skriflega á framfæri við stjórn.

 

  • Reiknings-og starfsár.
  1. gr.

Reiknings- og starfsár félagsins skal vera 16. maí til 15. maí ár hvert.

Árleg félagsgjöld skulu miðast við reikningsár félagsins. Fjárhæð og greiðslufyririkomulag skal ákveða á aðalfundi ár hvert.

 

  1. Aðalfundir og almennir félagsfundir.
  2. gr.

Aðalfundur fer með æðsta vald í skipulagsmálefnum félagsins og hefur vald til að breyta lögum þess. Aðalfund félagsins skal halda eigi síðar enn í lok maí ár hvert.

 

Aðalfund skal auglýsa á heimasíðu og samfélagsmiðlum  félagsins og boða öllum félagsmönnum skriflega og/eða með rafrænum pósti, dagskrá með a.m.k. viku fyrirvara og er hann þá lögmætur. Í aðalfundarboði skulu kynntar þær tillögur til lagabreytinga, sem óskað er eftir að hljóti afgreiðslu aðalfundar. Með aðalfundarboði skulu einnig fylgja upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins sem kjósa á á fundinum. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Auk þess skal boða til almenns félagsfundar að kröfu tveggja stjórnarmanna eða ef 1/10 hluti félagsmanna fer fram á það skriflega við stjórnina.

 

Verkefni aðalfundar eru eftirfarandi:

 

  1. a) kjör fundaritara og fundarstjóra
  2. b) skýrsla stjórnar lögð fram
  3. c) endurskoðaðir reikningar stjórnar lagðir fram til samþykktar
  4. d) breytingar á lögum félagsins
  5. e)Ákvörðun á félagsgjaldi fyrir næsta starfsár
  6. f) Kjör stjórnar
  7. h) Önnur mál.

 

Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema tillögur til breytinga á lögum félagsins eru afgreiddar, en 2/3 hluta fundarmanna á löglegum aðalfundi þurfa að greiða þeim atkvæði til að þær taki gildi. Tillaga um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 1. maí næstan á undan aðalfundardegi. Skal þess getið frá hverjum tillagan kemur.

 

Framboð til stjórnar Arsenalklúbbsins á Íslandi skulu tilkynnt stjórn fyrir 1. maí á undan aðalfundardegi. Tilkynningu skal fylgja  staðfesting þess sem  hver býður sig fram á  og því að hann/hún  staðfesting að einstaklingurinn gefi kost á sér til embættisins. Stjórn skal auglýsa framboðs- og tillögufrest aðalfundar skriflega og/eða rafrænt til félagsmanna ásamt auglýsingum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins eigi síðar er 2 vikum fyrir tilgreindan frest. Kosningar til stjórnarsetu og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar skulu vera leynilegar. Þó er heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar hafi nægjanlegur fjöldi ekki tilkynnt framboð sitt innan tilskilins frests.

 

Atkvæðisrétt á aðalfundum og kjörgengi í embætti hafa þeir félagsmenn sem eru fullgildir félagar 1. maí næstan á undan aðalfundi.

 

  1. gr.

Stjórn Arsenalklúbbsins á Íslandi skipa fimm aðalmenn og tveir til vara. Aðalfundur skal fyrst kjósa formann sérstaklega. Síðan skal kjósa tvo stjórnarmenn og tvo til vara auk eins endurskoðanda. Stjórnin skiptir með sér verkum að öðru leyti en því að formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi.

Formaður félagsins er kosinn til tveggja ára í senn. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir tveir í einu til tveggja ára í senn varamenn í stjórn og endurskoðandi eru kosnir til eins árs.

Félagsmenn sem mæta á aðlfundinn fá atkvæðisrétt svo lengi sem þeir eru skuldlausir. Umboð skuli berast stjórn eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.

 

Félagatal Arsenalklúbbsins er jafnframt kjörskrá fyrir kjör til stjórnar og skal kjörnefnd tryggja að allir frambjóðendur skuli hafa jafnan aðgang að kjörskrá. Kjörskrá inniheldur persónugreinanlegar upplýsingar. Frambjóðendur skulu undirrita trúnaðaryfirlýsingu og heita því að kynna sér og fylgja þeim reglum sem um meðferð og vinnslu slíkra upplýsinga gilda, m.a. þær sem finna má í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018 og lögum um fjarskipti nr. 81/2003. Bent skal á að viðurlög eru við misnotkun á kjörskránni.

 

  1. gr.

Stjórnarmenn verða að vera félagsmenn. Stjórn Arsenalklúbbsins skal leitast við að virkja félagsmenn í starfi fyrir klúbbinn og er heimilt að skipa starfshópa til að aðstoða við eða sinna einstökum verkefnum og skulu þeir starfa í umboði og á ábyrgð stjórnar.

 

  1. gr.

Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðalfunda innan ramma þessara laga.  Stjórnin tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum þess gagnvart öðrum aðilum. Ef atkvæði falla jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns úrslitum.

 

  1. gr.

Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara með tryggilegum hætti og stýrir fundi. Skulu varamenn taka sæti í stjórn í réttri röð eftir atkvæðafjölda á aðlfundi.

Fundargerðir skulu haldnar um stjórnarfundi og skal lesa upp fundargerð í lok fundar. Skulu fundarmenn undirrita samþykki sitt á fundargerð og skal rafræn undirritun teljast jafngild skriflegri.

 

VI. Slit félagsins, gildistaka

  1. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með auknum meirihluta atkvæða og þarf 2/3 hluta atkvæða til þess að slíta félaginu.  Ef félaginu er slitið skal aðalfundur ákveða hvað skal verða um eignir félagsins en eignir skulu þá renna til uppbyggingar fyrir áhugamenn um Arsenal og/eða til góðgerðarstarfsemi.  Tillaga um slit félagsins send með aðalfundarboði

 

  1. gr.

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 28 október 2006

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 19. maí 2008

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 28. maí 2015

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 25. maí 2017

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 22. maí 2024

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 25. maí 2025