![]() |
|
Post Reply
|
Page <1 100101102103104 134> |
| Author | |
Fabregas4
Þjálfari
Joined: 27 Júní 2008 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 1664 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 13:01 |
|
Puyol líkir Fabregas við fanga hjá Arsenal
Carles Puyol fyrirliði Barcelona segir að Arsenal sé að halda Cesc Fabregas hjá félaginu gegn eigin vilja leikmannsins. Fabregas hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í sumar og er óhætt að segja að Katalóníuliðið hafi beitt lúalegum brögðum til að reyna að fá leikmanninn til sín.
Allir leikmenn Börsunga hafa gefið það út hversu velkominn Fabregas yrði og auk þess hefur félagið lýst því yfir trekk í trekk að þeir vilji að þessi öflugi miðjumaður snúi aftur á heimaslóðir. Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur staðið fast á sínu og sagt að leikmaðurinn verði um kyrrt í Lundúnum en Puyol hefur nú bæst í hóp þeirra sem reyna að komast inn í hausinn á Fabregas. „Hann neyðist til að vera um kyrrt í heilt ár í viðbót hjá félagi sem hann langar að yfirgefa,” sagði Puyol við The Sun. „Ég spyr mig hversu gáfulegt það er að berjast fyrir að halda leikmanni sem vill ekki vera um kyrrt. Eftir að hafa þjónað félaginu frábærlega í sjö ár hefði ég haldið að Arsenal myndi leyfa honum að láta drauma sína rætast.” „Cesc hefur gefið allt sitt til Arsenal og reynt að vinna bikar með félaginu en þeir hafa ekki staðist væntingar hans. Ég segi kannski ekki að hann sé í fangelsi, þar sem við fótboltamenn njótum mikla forréttinda, en ég hefði haldið að Arsenal hefði leyft honum að fara til Barcelona þegar þeir sáu hversu augljóslega hann vill fara.” „Við (hjá Barcelona) héldum allir að hann myndi koma í sumar, en Arsenal hefur neitað þvi að ræða við okkur og við þurfum að bíða í annað ár þar til Cesc kemur heim.” „Hann er allt of góður gaur til að segja það opinberlega en staðreyndin er sú að hann hefur engan áhuga á því að vera hjá Arsenal á þessu tímabili. Hjarta hans er nú þegar í Barcelona, jafnvel þó við þurfum að bíða í eitt ár í viðbót eftir líkama hans.” „Við vitum að hann kemur á næsta tímabili. Barcelona hefur heilt ár til að komast að samkomulagi. Hann er nógu mikill atvinnumaður til að eiga frábært tímabil því hann ber líka mikla virðingu fyrir stuðningsmönnum Arsenal.” „En hver sá sem reynir að sannfæra sjálfan sig um að hann hafi viljað vera um kyrrt hjá Arsenal hefur rangt fyrir sér.” Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=95066#ixzz0vAa7GdC5 Vááááá, einu sinni var Puyol einn af mínum uppáhalds varnarmönnum. En núna hata ég þetta ógeð!!!!
Hver býður sig fram til þess að fara til Barcelona og buffa þennan stubb?
Barcelona hefur ekki efni fyrir honum, þeir voru að taka lán um daginn upp að 400m punda og þeir bjóða 30m punda í hann, sem er skítatilboð.
Nú mæli ég með að Wenger fari að bjóða 40m punda í Messi á fullu til þess að bögga þessa aula í Barcelona.
ÁFRAM REAL MADRID í spænsku deildinni!!!
Nú skil ég af hverju Henry fór frá Barca. Vel gert hjá honum að fara
|
|
|
Ég fer aftur til Arsenal, þá verð ég vatnsberi eða einhvað svoleiðis.
Thierry Henry |
|
![]() |
|
Calicula
Nýliði
Joined: 28 Ágúst 2009 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 151 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 14:09 |
|
Ef að Puyol getur bara staðfest að Fabregas sé fangi hjá Arsenal þá ég get staðfest að Puyol er alger hálfviti. Hafa þessi Spænsku félög og leikmenn enga siðferðiskennd ?
|
|
|
People come and pay to see football. They do not come to see free-kicks.- Arsene Wenger.
|
|
![]() |
|
sindrisva
Nýliði
Joined: 12 Maí 2008 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 51 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 14:22 |
|
Hann þarf nú að þjást fyrir að vera með þetta ótrúlega ljóta andlit á hausnum á sér
|
|
![]() |
|
Gunners
Nýliði
Joined: 08 Ágúst 2009 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 117 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 18:16 |
Haahahhaha vá hvað ég elska þessa messi hugmynd ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
|
![]() |
|
Björn
Byrjunarliðsmaður
Joined: 22 Janúar 2009 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 280 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 21:14 |
|
Vona að mourinho gjörsamlega slátri þeim í báðum leikjunum í deildinni og taki svo titilinn
|
|
![]() |
|
Fabregas4
Þjálfari
Joined: 27 Júní 2008 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 1664 |
Posted: 30 Júlí 2010 at 21:43 |
|
Barcelona þarf líka að bjóða rétta verð til þess að fá hann. Þeir eru svo heilalausir þessir hálfvitar.
Þeir halda að það sé nóg að bjóða skítatilboð og segja að hann vilji koma. Þótt Fabregas vilji fara, verða Barca að bjóða Arsenal rétta tilboð.
Þeir keyptu nú Zlatan 40m punda + Eto'o. Zlatan er 29 ára frammherji á niðurleið. Fabregas er 23 ára fyrirliði á uppleið.
Þetta er bara fyndið hvað þetta Barcelonamenn eru sorglegir. Ætti að senda þá á hæli í nokkra mánuði. Best yrði að kaupa Messi svo hann endi ekki sem pappakassi á Spáni. Nú er það staðfest að ég ætla ekki að halda með Spánverjum á næstum 2 stórmótum, það er annar hver leikmaður Spánar í Barca.
Ég er að spá í að kaupa mér Real Madrid treyju og setja PUYOL-PAPPAKASSI#0. Slæmt mál að ég hafi keypt mér Barca treyjuna
![]() Edited by Fabregas4 - 30 Júlí 2010 at 21:47 |
|
|
Ég fer aftur til Arsenal, þá verð ég vatnsberi eða einhvað svoleiðis.
Thierry Henry |
|
![]() |
|
arsene-al
Fyrirliði
Joined: 29 Janúar 2009 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 610 |
Posted: 31 Júlí 2010 at 00:40 |
|
Æ....!!!Þessi Fabregas,Barcelona umræða er dáldið útúr kú!!!??
Strákgreyið segir eitthvað í þá veru,að hann elski klúbbinn(ARSENAL!!) og Wenger gangi næstur karli föður sínum í virðingarstiganum og þar ofan að hann virði og langi "einhverntíma" að snúa aftur til heimahagana og spila fyrir "sitt" lið (Barcelona).
Hve oft hafa ekki leikmenn frá t.d Akranesi ekki lagst í víking og spilað fyrir hin og þessi lið,hingað og þangað,snúið síðan á skagann og spilað þar eina til nokkrar leiktíðir!!? Og engum dottið í hug að gera úr því stórmál!! En af því að Fabregas spilar fyrir ARSENAL,þá fá allir móðursýkisköst yfir einhverju fjölmiðlafári þar sem eitt blaðið túlkar orð hans (Fabregas) á þennan veg og svo einhvert annað á hinn veginn!! Minni ykkur bara á Biblíuna og túlkanir hennar! Hvað eru mörg trúarbrögð og kennisetningar úr henni sprotnar!? Nokkrar mistúlkanir þar á ferð!!....hmmm!!! Svo þessi læti yfir aðdáun leikmanna Barcelona á drengnum,æ...! mega þeir ekki bara öfunda okkur ræfilsgreyinn,að hafa þennann leikmann innann okkar raða!!? Mér er svosem slétt sama hvað þeir segja!!!
Hann er með samning hjá okkur sem ekki er alveg að fara að renna út á morgun! Og Wenger karlinn,þrjóskari en sá svarti í neðra!!
Þannig að ég sef alveg rólegur yfir þessu bulli öllu saman!!! |
|
|
A man happened upon a tumbstone that read:"Here lies Peter Hallewood a good man and a Manchester United fan." The man read it and asked:"when did they start putting two people in one grave?"
|
|
![]() |
|
Fabregas4
Þjálfari
Joined: 27 Júní 2008 Location: Iceland Online Status: Offline Posts: 1664 |
Posted: 31 Júlí 2010 at 12:21 |
|
Þeir sem voru búnir að láta sig dreyma um Kheidira þá geta menn gleymt honum, hann kominn til Real Madrid eins og ég var búinn að spá, og örugglega með 20millz á viku.
|
|
|
Ég fer aftur til Arsenal, þá verð ég vatnsberi eða einhvað svoleiðis.
Thierry Henry |
|
![]() |
|
Post Reply
|
Page <1 100101102103104 134> |
| Forum Jump | Forum Permissions ![]() You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot delete your posts in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot create polls in this forum You cannot vote in polls in this forum |