Originally posted by Elmo
Ef de Jong er til sölu hjá City að þá væri ég meira en minna til í hann að sjá hann hjá Arsenal. Gæti leyst þessa varnarsinnaðamiðju hjá okkur og Fabregas fengi að spila meira frjálst. Svo væri ég líka til í Craig Bellamy fyrst hann er að fara. Alltaf heillað mig þessi ekta breska spilamennska hjá honum.
Svo með markvarðastöðuna. Afhverju býður Wenger ekki í Akineev núna þegar hann er þarna í Rússlandi og enginn að bjóða neitt í alvöru í hann ?! Væri geggjað að hafa hann í markinu hjá okkur. Yrði svo orðinn fyrirliði þegar Fabregas myndi færa sig yfir í sólina.
Frábært byrjunarlið
Akineev
Sagna Koscielny Vermaelen Clichy
Fabregas de Jong
Arshavin Bellamy
van Persie
Chamakh
Væri frábært ef allavega einn af þessum þrem kæmi til okkar. Ef ég mætti velja að þá myndi ég vilja fá Akineev..................og það STRAX !!! 
|
Ertu alveg búinn að gleyma Song? Svo höfum við nóg af leikmönnum í stöðuna hans Bellamy.
Arshavin, Rosicky, Walcott, Nasri. Persónulega finnst mér þeir allir vera betri en Bellamy(fyrir utan kannski Walcott en hann er frábær í að koma af bekknum til að gjörsamlega slátra hægari varnarmönnum sem er orðnir þreyttir í þokkabót). Svo er líklegt að annaðhvort Chamakh eða Bendtner verði á kanntinum og Persie fremstur í 4-3-3 kerfi sem heillar mig meira heldur en 4-4-2 kerfið.
Almunia/Fabianski/Mannone/Szczezny
Sagna---Koscielny---Vermaelen---Clichy
---------------------Song---------------------
----------Fabregas----Diaby----------------
Chamakh----------------Arshavin
--------------------Persie---------------------
Að mínu mati er þetta er líklegasta byrjunarliðið í augnablikinu. Allir markmennirnir eiga möguleika á að komast í byrjunarliðið en ef að Wenger kaupir markmann þá verður hann í þeim gæðaflokki að hann fer strax í byrjunarliðið.
Þeir markmenn sem hafa verið orðaðir við okkur eru kannski helst þessir:
Schwarzer: Wenger er búinn að segja nei þegar hann var spurður útí Schwarzer.
Akinfeev: Held að hann sé ekki líklegasti kosturinn og það hlýtur að vera ágætis verðmiði á honum. Síðan ef miðað er við allt vesenið sem fór í að tala við Rússana þegar Arshavin var keyptur þá efast ég um að Akinfeev komi í sumar.
Stekelenburg: Eitthvað var talað um Stekelenburg en hann heillaði mig ekkert sérstaklega á HM í sumar.
Marchetti: Hann var víst ekki í hópnum hjá Cagliari í gær eftir að hann bað um sölu frá félaginu. Fjölmiðlar telja að Arsenal sé líklegasti endastaðurinn hjá honum.
Frey: Er hann ekki orðaður við okkur í hverjum einasta ''glugga?'' Efast um að hann verði keyptur í ár eftir að hafa verið orðaður við Arsenal undanfarin 5-7 árin.
Adler: Hann átti að vera aðalmarkvörður Þjóðverja í sumar en meiddist eitthvað fyrir mótið svo að Manuel Neuer kom inn í staðinn. Margir eru reyndar með blendnar tilfinningar til seinasta Þjóðverja sem stóð á milli stanganna hjá okkur en þar sem ég efast um að það komi annar jafn klikkaður ''keeper'' á þessari öld þá ætti Adler að vera áhugaverður kostur, áhugaverður en ólíklegur samt sem áður.
Svo er Wenger búinn að segja að 3 varnarmenn séu ekki nóg og að einn enn verði keyptur. Þar eru helstu nöfnin Mertesacker og Tasci en umboðsmaður Tasci sagði að hann færi á kannski 20 millur en það er að mínu mati alltof mikill peningur, Mertesacker ætti að fást á töluvert minni pening og kæmi með mikla hæð inn í liðið sem er svoldið sem Arsenal á ekki mikið af. Sjálfur er ég sammála Fabregas4 þegar hann segir að að þurfi reyndari varnarmann a.m.k. á bekkinn því að Verma og Laurent eru bara 25 ára og Djourou 23, svo í þokkabót hefur Vermaelen bara spilað eitt ár á Englandi, Laurent ekkert og Djourou hefur verið aðallega á bekknum eða í varaliðinu þau ár sem hann er búinn að vera hérna. Væri gott að fá hávaxinn varnarmann sem er með reynslu af ensku deildinni en er tilbúinn að verma bekkinn ef þess þarf.
Edited by Elli - 29 Júlí 2010 at 11:36